Tilkynning vegna væntanlegs óveðurs 10. desember

Kæru foreldrar


Á fundi neyðarstjórnar Kópavogs í morgun var ákveðið að foreldrar verði hvattir til að sækja börnin sín um hádegi í dag í leikskóla, grunnskóla og frístundastarfsemi.

Bendum við á að íbúar fari eftir þeim tímaramma sem er hér að neðan:

 

13:00 Börn séu ekki utandyra

14:00 Foreldrar sæki börn ekki síðar í skóla. Stofnunum (þ.e. sundlaugar og söfnum) verður lokað.

15:00 Bæjarstjórnarskrifstofum, skólum og leikskólum verður lokað.

 

Lagt er til að æfingar og önnur frístundastarfsemi sem á að hefjast eftir kl. 15:00 verði felld niður. Spáð er miklu hvassviðri frá 15:00 og fram á nótt.


Schools and leisure activities in Kópavogur will be disrupted because of an orange storm warning today Dec. 10. Children should not be outside after 13:00. Authorities urge people to pick up their children before 14:00.

All leisure activities will be cancelled after 15:00 and schools, playschools and Kópavogur City Hall will be closed after 15:00.