Leikskólinn Kópasteinn hóf starfsemi árið 1964 og er fyrsti leikskólinn í Kópavogi. Kópasteinn stendur í ákaflega fögru umhverfi í hjarta Kópavogs við Borgarholtið.
Kópavogskirkjan er á hæðinni fyrir ofan okkur, Listasafn Gerðar Helgadóttur blasir við og Salurinn. Þá er Borgarholtið hér allt í kring. Börnin þurfa því ekki að fara langt til að upplifa fagurt útsýni, fallegar byggingar og menningu. Vettvangsferðir eru tíðar í nærliggjandi stofnanir og nánasta umhverfi.
Arkitekt leikskólans er Bárður Daníelsson arkitekt og verkfræðingur. Hönnuður lóðar er Aðalheiður Kristjánsdóttir landslagsarkitekt. Byggt var við skólann í kringum 1987, ein deild, salur og kjallari. Í kjallara skólans er að finna listasmiðju fyrir eldri árganga og bókasafn skólans. Þar er einnig vinnuaðstaða kennara og kaffistofa starfsmanna. Haustið 2023 stækkaði leikskólinn þegar Hábraut 3 var sameinuð Kópasteini.
Leikskólinn Kópasteini er fimm deilda leikskóli í tveimur húsum með 98 börn á aldrinum 1- 5 ára á aldursskiptum deildum. Skólinn opnar kl. 7:30 og lokar kl. 16.30. Í starfinu er lögð áhersla á sjálfssprottinn leik í allri sinni fjölbreytni, lífsleikni, tónlist og málrækt
Börnin fara í vinnustundir í tónlist, skapandi starfi, málrækt og fleiru. Í sjálfssprottna leiknum er notað valkerfið en þá er fjölbreyttur efniviður í boði í frjálsum leiktíma barnanna. Samverustundir eru daglega inni á öllum deildum. Þar er lesið og sungið og hin ýmsu mál rædd í barnahópnum.
Endurvinnsla og endurnýting er samofin starfinu. Umhverfisfræðsla er stór þáttur af starfinu, á vorin og haustin er lögð áhersla á að vinna með náttúruna í víðum skilningi. Við sáum fyrir ýmsum jurtum, setjum niður kartöflur og höldum sérstaka Umhverfisdaga í skólanum.
Fjölmenning er allnokkur við skólann og við fögnum henni í daglegu starf.
Vorhátíð okkar heitir "Komdu að leika" og er í maí. Við bjóðum foreldrum að koma og vera með barni sínu í ýmsum verkefnum, fara um skólann og kynnast starfinu á öllum deildum hluta úr degi.
Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og foreldraráð.
Í Kópasteini er góður starfsandi og gott hlutfall fagmenntaðs starfsfólks ásamt reyndum leiðbeinendum.